Einingakubbar í stærðfræði og leik

bekablocks 

Mig langar að nota tækifærið hér og auglýsa bókina okkar Svövu Mörk sem kom út í október 2007. Bókin byggir á lokaritgerð okkar til B.Ed prófs í leikskólafræðum við Háskólann á Akureyri og fjallar um hvernig leikurinn nýtist sem námsleið og hvað felst í námi ungra barna. Einnig komum við inn á hlutverk kennarans og hvaða áhrif hann hefur á nám barnsins. Við fjöllum um einingakubba sem hannaðir voru af Caroline Pratt en hún var bandarískur uppeldisfrömuður og hafði einstaklega mikinn áhuga á skoða hvernig börn gætu lært í gegnum leikinn. Einnig gerum við grein fyrir sýn fræðimannsins John Dewey á menntun barna og hlutverk kennarans. Við komum líka inn á hvernig efla megi stærðfræðinám barna með því að nota einingakubba í grunnskólum. Bókin heitir  Einingakubbar í stærðfræði og leik Sendið okkur póst ef þið viljið panta bók: hannaruna@internet.is    valey@simnet.is    Verð 2.500 kr

 

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

jiiiiiii.....

Hilmar (IP-tala skráð) 28.4.2008 kl. 22:06

2 identicon

Hæhæ Hanna mín :)

Rosalega er þetta glæsileg síða .. greinilega mjög virk!

Frábært framtak með bókina, væri til í að skoða þetta nánar, er reyndar fátækur námsmaður sem segir það að ég á EKKI Pening 28apríl :P  En til hamingju með hana!!

Vonandi sé ég þig á föstud.

God bless!!

Tinnzý

Tinna Björt "frænka" (IP-tala skráð) 28.4.2008 kl. 22:59

3 identicon

Svava Björg Mörk (IP-tala skráð) 29.4.2008 kl. 08:31

4 Smámynd: Bryndís Eva Vilhjálmsdóttir

Langar að segja aftur til hamingju með bókina, er þetta ekki bara byrjun á glæstum rithöfundarferli! lovjú longtime!

Bryndís Eva Vilhjálmsdóttir, 30.4.2008 kl. 12:49

5 Smámynd: Jóhanna Sigrún Jónsdóttir

Þetta er örugglega fyrsta bókin af 100... kemur allt í ljós.. er tildæmis með ljóðabók í maganum (nei ég segi nú svona)

love you to longtime sweety

Jóhanna Sigrún Jónsdóttir, 30.4.2008 kl. 17:09

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband