Bloggfærslur mánaðarins, nóvember 2008

Innilega til hamingju

Frábær að fá svona upp í hendurnar. Hefði verið gaman ef Morgunblaðið hefði nú verið rausnarlegt og sent alla sína áskrifendur í svona ferð. Góðar fréttir í baslinu. Alma og fjölskylda innilega til hamingju.


mbl.is Á leið í Karíbahafið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Roseanne Barr

roseanne

Uppáhaldsþættirnir mínir fyrir mörgum árum voru Roseanne. Ég tók þá upp og gat horft á þá aftur og aftur. Ég síðan pantaði mér á Amazon allar seríurnar (rétt fyrir kreppu þegar dollarinn var rúml 70 kr.) og fer með það eins og gull. Ég er með brot sem ég fann á Tube þar sem þau eru að uppgötva sér til mikilar geði að þau hafi unnið stórann lottovinning eða 108 milljón dollara. Þar sem Dan var nýbúin að fá hjartaáfall þá varð að fara rólega að honum með fréttirnar og passa upp á að æsa hann ekki of mikið.

 

 


Hver er næstur?

Hvar endar þetta.... eru öll fyrirtæki að fara á hausinn?

Hver man eftir þessari auglýsingu.... ekki langt síðan

Störf í boði

husa_starfsmenn

Viltu vinna hjá góðu fyrirtæki? Húsasmiðjan leitar að þjónustulunduðu og hæfileikaríku starfsfólki til að bæta við í þann góða hóp sem fyrir er.

mbl.is Uppsagnir hjá Húsasmiðjunni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ragnar Emil

Styrktartónleikar Ragnar Emils Verða haldnir í sal Flensborgarskólans í dag,
laugardaginn 22. nóvember kl 17.
Ragnar Emil er 18 mánaða gamall hafnfirðingur sem greindist ungur með SMA 1, sem er tauga og vöðva rýrnunar sjúkdómur.
þar sem að þetta er mjög alvarlegur sjúkdómur
þarfnast fjölskylda Ragnars mikills stuðnings.

Fram koma Flensborgarkórinn, Kór Flensborgarskólans,
Hljómeyki, Söngsveitin Fílharmónían,Kór Öldutúnsskóla,
kvennakór Öldutúnsskóla og Karlakórinn þrestir

Miðaverð:2000kr

Forsala miða í Súfistanum Hafnarfirði og Súfistanum Reykjavík(IÐU húsinu)
Einnig hægt að kaupa miða við innganginn.


Sýnum stuðning og reynum að mæta.
Þeir sem sjá sér ekki fært um að komast á tónleikana, en vilja leggja málefninu lið
þá er því velkomið að leggja inná söfnunarreikninginn:

Rn 1158-26-1084
Kt.271084-2509
Bestu kveðjur

Við könnumst við þessa aðferð

það er íslendingabragur á þessu. Eru ekki íslendingar að gera þetta sjálfir, taka lán til að borga lán?  góð leið til að redda sér.

Húrra fyrir Finnum. Góðir grannar.


mbl.is Þurfa að taka lán til að lána Íslandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Styrktartónleikar fyrir fallega drenginn Ragnar Emil

Styrktartónleikar Ragnar Emils Verða haldnir í sal Flensborgarskólans
laugardaginn 22. nóvember kl 17.
Ragnar Emil er 18 mánaða gamall hafnfirðingur sem greindist ungur með SMA 1, sem er tauga og vöðva rýrnunar sjúkdómur.
þar sem að þetta er mjög alvarlegur sjúkdómur
þarfnast fjölskylda Ragnars mikills stuðnings.

Fram koma Flensborgarkórinn, Kór Flensborgarskólans,
Hljómeyki, Söngsveitin Fílharmónían,Kór Öldutúnsskóla,
kvennakór Öldutúnsskóla og Karlakórinn þrestir

Miðaverð:2000kr

Forsala miða í Súfistanum Hafnarfirði og Súfistanum Reykjavík(IÐU húsinu)
Ég get einnig útvegað miða, svo endilega hafið samband s. 822-6628


Sýnum stuðning og reynum að mæta.
Þeir sem sjá sér ekki fært um að komast á tónleikana, en vilja leggja málefninu lið
þá er því velkomið að leggja inná söfnunarreikninginn:

Rn 1158-26-1084
Kt.271084-2509
Bestu kveðjur
.....
....

Góðar fréttir

     

Konur mildast með aldrinum !!!

Mikið eru þetta góðar fréttir. Ekki veitir af að fá svona góðar fréttir í öllu bullinu sem er í gangi. Áfram konur, koma svoooo.

angry-woman-2 angry-woman-rolling_~15477-18dg

angry_20woman_smallist2_2795730_crazy_woman


mbl.is Konur mildast með aldrinum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Einn góður

Einn hrikalega góður

5052800

Maðurinn hafði fundið aðra - svo hún átti að flytja út. Hún eyddi fyrsta deginum í að pakka öllu niður í kassa. Næsta dag kom fluttningsbíllinn og sótti allt dótið. Þriðja daginn settist hún við fallega borðstofuborðið í síðasta skipti, kveikti á kertum, setti góða músik á og borðaði stóran skammt af rækjum, rússneskum kavíar og drak flösku af Chardonnay. Þegar hún hafði borðað, gekk hún hringinn í hvert einasta herbergi og tróð rækjurestum inn í endana á öllum gardinustöngunum! Þar á eftir gerði hún eldhúsið hreint og yfirgaf húsið.

Þegar maðurinn kom tilbaka í húsið með nýju kærustuna sína, voru fyrstu dagarnir ekkert nema gleði og hamingja. En svo byrjaði húsið smám saman að lykta. Þau prófuðu allt, ryksuguðu, þvoðu, loftuðu út. Loftræstingin var skoðuð gaumgæfilega kanski voru þar dauðar mýsog rottur, teppin voru hreinsuð, og ilmpokum og loftfrískandi vörum var komið fyrir alls staðar. Meindýravörnin var kölluð til og húsið var "gasað" gegn lyktinni, það þýddi, að þetta hamingjusama par þurfti að flytja út í nokkra daga. Að lokum var allt veggfóður rifið af og húsið allt málað vel og vandlega. Ekkert hjálpaði. Vinirnir hættu að koma í heimsókn. Iðnaðarmenn og aðrir starfskraftar gerðu allt til þess að þurfa ekki að vinna í húsinu. Húshjálpin sagði upp. Á þessum tímapunkti gátu þau ekki heldur haldið fnykinn út lengur, svo þau ákváðu að selja.

Mánuði seinna hafði húsið ekki selst, þrátt fyrir að verðið hafi lækkað um helming. Sagan gekk, og fasteignasalinn hætti að svara hringingum þeirra. Að lokum voru þau neydd til að taka stórt bankalán til að kaupa nýtt hús. Fyrrverandi - eiginkonan hringdi til mannsins og spurði hvernig gengi. Hann sagði henni söguna um rotna húsið. Hún hlustaði með mikilli umhyggju og sagði svo að hún saknaði gamla heimilis síns ógurlega mikið, og hún gæti vel hugsað sér að kaupa húsið aftur. Maðurinn var viss um að, ex-ið vissi ekkert um hve málið væri slæmt, svo hann samdi við konuna að selja henni húsið á tíunda-hluta af markaðsverði, gegn því skilyrði að skrifað yrði undir samdægurs. Hún samþykkti það.

Viku seinna stóðu maðurinn og kærastan í húsinu í síðasta sinn - þau hlógu yfir sig hamingjusöm. Og þeim var létt þegar fluttningsbíllinn kom og sótti allt þeirra dót til að keyra því yfir í nýja húsið. - þar á meðal gardínustöngunum!!!!

 


ráðamenn talið íslensku

Að því tilefni vona ég að íslenskir ráðamenn fari að tala íslensku. Væri til í að skilja bullið í þeim.
mbl.is Dagur íslenskrar tungu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Viðhorf

Fékk svo skemmtilegan póst um daginn sem ég ætla að deila með ykkur.

Vera smá Pollyanna þessa dagana.

pollyanna-poster3

Viðhorf

Kona ein vaknaði að morgni,

leit í spegilinn,

og sá að hún var aðeins með þrjú hár á höfðinu.

Jæja" hugsaði hún, ætli ég hafi ekki hárið greitt aftur í dag.'

Sem hún og gerði og átti fínan dag.


Næsta dag vaknaði hún,

leit í spegilinn

og sá að hún var aðeins með tvö hár á höfðinu. 
                                                                               
'H-M-M,' hugsaði hún,

'Ætli ég skipti ekki bara í miðju í dag.'

Sem hún og gerði og átti frábæran dag.



Næsta dag vaknaði hún,

leit í spegilinn og sá

að það var aðeins eitt hár á höfðinu.

'Jæja,' sagði hún, ætli ég verði ekki með

hárið í tagli í dag.'

Sem hún og gerði og átti skemmtilegan dag.



Næsta dag vaknar hún,

lítur í spegilinn og sér

að það var ekki stingandi strá á höfðinu.

'YAY!' hrópaði hún.

'Ég þarf ekki að hafa áhyggjur af hárgreiðslu í dag!'


Allt snýst þetta um viðhorf.


Lífið snýst ekki um að bíða eftir að storminn lægi...
það snýst um að dansa í rigningunni
.


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband