Bloggfærslur mánaðarins, maí 2008

Smá torfæruferð um helgina

CIMG3107

Á leið á toppinn

CIMG3110

Þessi kelling fékk far :)


Gestabloggari: Hilmar Rafn Emilsson

Góðan daginn góðir hálsar. Hilmar heiti ég og fæ þann gríðarlega heiður að vera gestabloggari á þessari síðu þar sem Jóhanna móðir mín nennti ekki að blogga. Hún hendir einfaldlega einhverjum skítamyndum af Man utd. inn og vonar svo að fólk skoði síðuna sem er ekki líklegt þar sem ekkert spennandi er hér að finna. Nú breytist það og mun ég setja inn pistla öðru hvoru þegar síðan er orðinn leiðinlegri en gömul kona í kvörtunardeild Hagkaupa.

Pistill minn að þessu sinni beinist að Júróvisíon. Í þessum töluðu orðum sit ég heima í sófa og horfi á þessa úrkynjun. Ég hef greinilega ekkert og þá meina ég EKKERT annað að gera. Öll lögin og þar á meðal það íslenska eru svo lél....... 

NEEEEIIIIIIIII, Ísland var að komast áfram!!!!! Vá glætan, ísland hefur ekki sent svona glatað lag síðan Selma hélt í víking fyrir 9 árum með verst samda lag sem samið hefur verið í farteskinu og gerði líka svona glimrandi hluti, ekki það að önnur íslensk lög hafi verið góð. Við höfum aðeins sent þrjú góð lög í keppnina þessi 22 ár sem við höfum tekið þátt, Nínu, Sókrates og Eitt lag enn. Önnur lög hafa verið vægast sagt slök. Þetta er samt nokkuð týpískt, lélegu lögunum gengur alltaf vel. Ég held að Eitt lag enn sé eina undantekningin, lenti í 4. sæti að mig minnir en undantekningin sannar regluna. Kannski var það viljandi gert að senda svona lélegt lag í keppnina, því hlýtur að ganga vel.

Ekki misskilja mig og halda að öllum lögum sem gangi illa séu góð. Þau eru lang flest léleg líka, munurinn er samt sá það er til nokkuð sem heitir Júróvisíon-lélegt og Júróvisíon-gott. Munurinn verður ekki skýrður hér enda færi mikill tími og flóknar útskýringar í það. En þau sárafáu sem eitthvað varið er í lenda oftar en ekki í neðstu sætunum og teljast þau Júróvisíon-léleg  

Í ár er eitt gott lag í keppninni og það kemur frá Frökkum. Það ber af og það er enginn Júróvisíonbragur á því, það er kannski þess vegna sem það er gott. Ég hlakka til að sjá það lenda í neðsta sæti af þeim sökum og þá get ég haldið áfram að drulla yfir keppnina og alla þá sem koma nálægt henni.


Mitt val í Evró2008

Kveðja Hanna Rúna


Manchester United Evrópumeistarar 2008

 

 


Amma Bryndís

bev 

Mikið er hún Bryndís vinkona mín orðin rík. Líka mjög skrýtið að hún sé orðin amma. ( æi það gerir mig svo gamla )

Hér er hún með litla ljósið sitt, stelpuna hennar Tinnu Bjartar og Ottó.  Innilega til hamingju allir.

 


Austfirðir

Vel heppnuð ferð á austurlandið þrátt fyrir að Haukar hafi bara fengið eitt stig í pottinn. (voru heppnir því því þeir voru frekar slappir í leiknum)

DSC07578

Hilmar Rafn Emilsson leikmaður númer 8 og dómarinn flautar til leiks

DSC07583

Hilli þreyttur eftir leik

DSC07580

Hilli og Tolli frændi

DSC07519

Elsa Jóhanna að skoða fuglasafnið á Borgarfirði Eystra

DSC07515

ásamt frændsystkinum sínum Tolla og Heklu Rán

DSC07507

DSC07574

18 maí og enn snjór á Norðfirði

DSC07556

Halli bró að undirbúa stórveislu

DSC07563

Flott útsýni ( þarna bakvið Emil Hörð Smile ) frá húsinu hans Halla.

DSC07462

Mjög gaman að keyra á þessum stað Hauganes en þar við ströndina er eitt mesta fuglalíf á Íslandi.


Stöðvarfjörður um helgina

 

Við Emil Hörður og Elsa ætlum að leggja land undir fót um helgina og kíkja á austfirðina. Alltaf gaman að fara þangað enda mjög fallegt á þessum slóðum. Gistum hjá Halla bró sem býr á Stöðvarfirði og kíkjum örugglega á Önnu Fíu sem er þessa dagana stödd á Eglistöðum eða þar í næsta nágrenni.

Á sunnudaginn er síðan leikur sem verður á Norðfirði

Haukar- Fjarðarbyggð kl 14.00

Góða helgi

 


Nýir ættingar Anna Bryndís og Stefnir

DSC07347

Anna Bryndís Ágústsdóttir (20 apríl 2008) og Elsa Jóhanna

DSC07355

Við Emil að æfa okkur fyrir ömmu og afahlutverkið.

Systkinin Páll Arnar og Anna Bryndís svo sæt

DSC07366

Hér er hann Stefnir Styrmirson (6 maí 2008) Svo fallegur alveg eins og Dóra Hrönn stóra systir sem varð fjögurra ára 7 maí.

Til Hamingju Guðgjörg, Ágúst, Fríða Hrönn og Styrmir.


Hringvegurinn júli 2007

P7120021

Elsa við Goðafoss við Skálfanda

P7130040

P7130058

P7130077

Emil, Freddi og Elsa skelltu sér í sund úti í náttúrunni og hér sért í búningsklefannP7140165

P7140175

Sigling á Lagafljóti ausur á Héraði

P7150307

 Hanna Rúna, Elsa Jóhanna og Kristín Björg

P7150305

Pabbi og Elsa Jóhanna

 


3 dagar í atburðinn

haukar

Allir á völlinn.

Verð að minna á leikinn sem er á mánudaginn 12 maí kl 17.00

Haukar mæta Víking Ólafsvík á Ásvöllum kl 17.00.

Mjög spennt ... Væri mikið til í að Haukar myndu næla sér strax í upphafi tímabilsins í 3 stig.

Góða langa helgi.

 


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband