Bloggfærslur mánaðarins, ágúst 2008

Slepptu því að fara

þeir sem þola ekki myndina ættu hreinlega að sleppa því að sjá hana. Þeir sem fara og finnst hún leiðinleg eiga þá að sleppa því að fara aftur. Sem betur fer er misjafn hvað fólki finnst og mismunandi smekkur manna. Ég tildæmis þoli ekki hryllings og drápsmyndir og þá eindaldlega sleppi ég því að horfa á þær. Að mínu mati er mama mía gott innlegg inn í bíóflóruna. Allir hafa val, ef það er eitthvað sem þú fílar ekki þá slepptu því en leyfðu öðrum að njóta. Engin er eins sem betur fer.
mbl.is Mamma Mía! þvílíkur fjöldi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Til hamingju með daginn!

Uppáhalds stelpan mín á afmæli í dag 30 ágúst og er orðin 12 ára. Elsa er skemmtileg, blíðlynd og mjög góð stelpa með munninn fyrir neðan nefið. Hún má ekkert aumt sjá og hún elskar dýr þó sérstaklega hunda. Fyrir henni eru myndir um dýr sem eiga bágt bannaðar fyrir yngri en 16 ára því hún telur þær allt of sorglegar. Það má nú segja að hún veit hvað hún vill og lætur svo sannalega vita af því hún heldur að Guð hafi skapað eigendur hennar og bræður til að þjóna henni og veita henni ALLT sem henni vanhagar um. Við foreldrarnir og fleiri, reynum að gera allt til þess að lífið verði henni tóm skemmtun og sæla og að henni vanhagi ekki um neitt. Lífið er nú bara þannig að hennar mati að það á að vera skemmtilegt twentyfour-seven og ekki einn einasti dauður tími. Ég vona að það eldist seint af henni. Allt sem er gott á að gerast í gær og allt sem er skemmtilegt verður bara hreinlega að gerast akkúrat á þessari stundu, það á sko ekki að bíða eftir neinu enda engin ástæða til. Til hamingju með daginn elsku dollan mín.

DSC08787

jún 2008

DSC06201

8 ára


Gullið eftir 4 ár í London

Til hamingju með silfrið Ísland. Ekki spurning um að við förum með gullið heim árið 2012, ég er ekki í nokkrum vafa um það. Strákarnir eru búinir að sýna það á síðustu dögum að þeir hreinlega rúlla þessu upp. Gæti trúað að mikil fjöldi íslendinga skelli sér til London á næstu OP leikum enda ekki langt að fara og við en í sigurvímu með silfrið.
mbl.is Til hamingju Ísland!
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Einingakubbar í stærðfræði og leik

einingakibbar
 

Í upphafi skólaársins langar mig að auglýsa bókina okkar Svövu Mörk, sem kom út í október 2007. Bókin byggir á lokaritgerð okkar til B.Ed prófs í leikskólafræðum við Háskólann á Akureyri og fjallar um hvernig leikurinn nýtist sem námsleið og hvað felst í námi ungra barna. Einnig komum við inn á hlutverk kennarans og hvaða áhrif hann hefur á nám barnsins. Við fjöllum um einingakubba sem hannaðir voru af Caroline Pratt en hún var bandarískur uppeldisfrömuður og hafði einstaklega mikinn áhuga á skoða hvernig börn gætu lært í gegnum leikinn. Einnig gerum við grein fyrir sýn fræðimannsins John Dewey á menntun barna og hlutverk kennarans. Við komum líka inn á hvernig efla megi stærðfræðinám barna með því að nota einingakubba í grunnskólum. Bókin heitir  Einingakubbar í stærðfræði og leik Sendið okkur póst ef þið viljið panta bók: hannaruna@internet.is    valey@simnet.is    Verð 2.500 kr


Flutt að heiman

Tinna sæta er að flytja frá okkur. Hún ætlar að eiga heima í Borgarnesi og er hún svo heppin að hún eignast systur sem heitir Dimma sem er 1 árs. Síðan eru auðvita fullt af mannfólki á heimilinu sem á örugglega eftir að dekra við hana.


Tinna

Ef einhver veit  um gott hundavænt heimili fyrir Tinnu þá endilega hafa samband. Hægt að skrifa í athugasemd hér fyrir neðan eða senda mér póst: hannaruna@internet.is  Hún er hreinræktuð og heitir tegundin American cokker spanel. Hún er bara eins árs en hún átti afmæli 13 apríl síðasl.

P8110073

Hér er Tinna tæplega 4 mánaða

tinna

Tinna um 10 mánaða á leið í klippingu

 


Vona að Man. Utd verði bustaðir

Held ekki með N.C. bara vona að þeir busti Rauða liðið. Kanski að tyggjóið standi þá í þjálfaranum.
mbl.is Manchester United og Newcastle skildu jöfn, 1:1
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Enski boltinn farin að rúlla

Þá er komið að því. Enska úrvalsdeildin að byrja í dag 17 ágúst. Vona að Man U eða Arsenal takið þetta ekki núna. Auðvita vona ég að Tottenham eða Liverpool verði efstir, Bara EKKI  hin tvö rauðu liðin. Bara öll lið nema Arsenal og Man. Utd. Chelsea liðið er víst í góðum gír og margir spá þeim mjög ofarlega.

Tak fur sist Lilly !!

P8050108

Nokkrar gamlar vinkonur Hafdís, Hanna Rúna, Þóra og Lilly.

Lilly! næst kem ég í heimsókn til þín til Boca og verð lengur en 2 daga Grin Takk fyrir frábæra daga hér um daginn, rosalega gaman að hafa þig. Vildi þú hefðir verið lengur.

 tinna og lilly

Lilly með fallegasta barnið.... og svo Tinna sæta mamman

pulsa

Lillys favorit resturant: Bæjarins bestu. yea thats so good Brendis. Im telling you sister so and so


En og aftur

Skagamenn eiga alla mína samúð. Ráðið bara Guðjón aftur, þessir tvibbar eru ekkert skárri. Lausnin hlýtur að vera önnur á þessum tapleikjum en að reka þjálfarinn. Þetta er bara lélegt lið.


mbl.is Stórsigur Keflvíkinga gegn lánlausum Skagamönnum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband