Bloggfærslur mánaðarins, ágúst 2009

Frábært

Glæsilegur sigur hjá Haukum, komnir með annan fótinn upp í úrvalsdeild.

Áfram Haukar!

haukar


mbl.is Garðar sá um HK í 2:0 sigri Hauka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fullur í vinnunni!

Maður mætir ekki fullur í vinnuna svo einfalt er það. Ég yrði rekin úr minni vinnu og síðan er málið dautt. Sigmundur skaut sig í fótinn þegar hann laug og þrætti fyrir að hafa verið að drekka og notaði síðan plan B þegar hann sá að lygin virkaði ekki, sagði bara sorry. Málið er ekki svona einfalt, auðvita á hann að víkja frá eins og allir aðrir.


mbl.is Fékk sér léttvín með mat
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hundur er málið

Þetta er betra en Securitas enda þjófarnir yfirleitt löngu farnir heim með þýfið þegar þeir mæta á svæðið. Hundur er málið

Police%20Dog


mbl.is Hundur stökkti þjófi á flótta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Glæsilegt

Mörg ár síðan K R hefur unnið F H... Alltaf svo sátt þegar F H tapar. Allt of mikið forskot í deildinni. Vona að þeir séu að missa þetta niður.

FunnySportsAccidents002


mbl.is Langþráður sigur KR-inga á FH
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Móses

Þetta minnir á söguna um Móses í biblíunni.

ClayDetailMoses

Fæðing Móse og æska

1Maður nokkur af ætt Leví fór og tók sér eiginkonu af sömu ætt. 2Konan varð þunguð og eignaðist son. Þegar hún sá hve efnilegur hann var faldi hún hann í þrjá mánuði. 3Þegar hún gat ekki leynt honum lengur fékk hún sér körfu úr sefi handa honum. Hún þétti hana með biki og tjöru, lagði drenginn í hana og setti körfuna út í sefið við árbakkann. 4En systir hans stóð þar álengdar til að fylgjast með hvað um hann yrði.
5Þá gekk dóttir faraós niður að ánni til að baða sig en þjónustustúlkur hennar gengu eftir árbakkanum. Hún kom auga á körfuna í sefinu og sendi þjónustustúlku sína eftir henni.

6Þegar hún opnaði körfuna sá hún grátandi dreng í henni.Hún vorkenndi honum og sagði: „Þetta er einn af hebresku drengjunum.“ 7Þá spurði systir hans dóttur faraós: „Á ég að fara og kalla á hebreska brjóstmóður fyrir þig?“ 8Dóttir faraós svaraði: „Já, gerðu það.“ Stúlkan fór og kallaði á móður drengsins.

9Dóttir faraós sagði við hana: „Farðu með þennan dreng og hafðu hann á brjósti fyrir mig og ég skal launa þér það.“ Konan fór með drenginn og hafði hann á brjósti. 10Þegar drengurinn stálpaðist fór hún með hann til dóttur faraós sem tók hann í sonar stað.

Hún gaf honum nafnið Móse og sagði: „Því að ég dró hann upp úr vatninu.“

Önnur Mósebók 2 kafli.

 


mbl.is Ungabarn fannst í runna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband