Gestabloggari: Hilmar Rafn Emilsson

Góðan daginn góðir hálsar. Hilmar heiti ég og fæ þann gríðarlega heiður að vera gestabloggari á þessari síðu þar sem Jóhanna móðir mín nennti ekki að blogga. Hún hendir einfaldlega einhverjum skítamyndum af Man utd. inn og vonar svo að fólk skoði síðuna sem er ekki líklegt þar sem ekkert spennandi er hér að finna. Nú breytist það og mun ég setja inn pistla öðru hvoru þegar síðan er orðinn leiðinlegri en gömul kona í kvörtunardeild Hagkaupa.

Pistill minn að þessu sinni beinist að Júróvisíon. Í þessum töluðu orðum sit ég heima í sófa og horfi á þessa úrkynjun. Ég hef greinilega ekkert og þá meina ég EKKERT annað að gera. Öll lögin og þar á meðal það íslenska eru svo lél....... 

NEEEEIIIIIIIII, Ísland var að komast áfram!!!!! Vá glætan, ísland hefur ekki sent svona glatað lag síðan Selma hélt í víking fyrir 9 árum með verst samda lag sem samið hefur verið í farteskinu og gerði líka svona glimrandi hluti, ekki það að önnur íslensk lög hafi verið góð. Við höfum aðeins sent þrjú góð lög í keppnina þessi 22 ár sem við höfum tekið þátt, Nínu, Sókrates og Eitt lag enn. Önnur lög hafa verið vægast sagt slök. Þetta er samt nokkuð týpískt, lélegu lögunum gengur alltaf vel. Ég held að Eitt lag enn sé eina undantekningin, lenti í 4. sæti að mig minnir en undantekningin sannar regluna. Kannski var það viljandi gert að senda svona lélegt lag í keppnina, því hlýtur að ganga vel.

Ekki misskilja mig og halda að öllum lögum sem gangi illa séu góð. Þau eru lang flest léleg líka, munurinn er samt sá það er til nokkuð sem heitir Júróvisíon-lélegt og Júróvisíon-gott. Munurinn verður ekki skýrður hér enda færi mikill tími og flóknar útskýringar í það. En þau sárafáu sem eitthvað varið er í lenda oftar en ekki í neðstu sætunum og teljast þau Júróvisíon-léleg  

Í ár er eitt gott lag í keppninni og það kemur frá Frökkum. Það ber af og það er enginn Júróvisíonbragur á því, það er kannski þess vegna sem það er gott. Ég hlakka til að sjá það lenda í neðsta sæti af þeim sökum og þá get ég haldið áfram að drulla yfir keppnina og alla þá sem koma nálægt henni.


Bloggfærslur 23. maí 2008

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband