15.11.2008 | 15:16
bull
Algjört bull. Svo á þetta að líta voðalega vel út: Lækkun á bensíni. Fólk er ekki búið að gleyma að fyrir nokkrum vikum eða mánuðum var eldsneytið mikið lægra en þetta 147 krónur. Þoli ekki þegar verð eru sprengt upp úr öllu og rétt á eftir koma gleðifréttir: Lækkun á verði og allir glaðir. Það er alltaf verið að plata þjóðfélagsþegna þessa lands. Eldsneytið á að vera undir 100 krónum þá er hægt að tala um að það sé aðeins að lækka.... annars sleppa því.
![]() |
Eldsneytisverð víða lækkað í dag |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
15.11.2008 | 11:42
Ég ætla deila skeiðinni með þér
Góð saga okkur til umhugsunar
Helgur maður var í viðræðum við Guð og sagði:
Guð, mig langar að vita hver munurinn er á himni og helvíti.
Við svo búið fór Guð með manninn að tvennum dyrum.
Hann opnaði aðra þeirra og hinn helgi maður leit inn.
Í miðju herbergisins var stórt hringlaga borð.
Á miðju borðsins var stór pottur með pottrétti sem ilmaði svo vel að
hinn helgi maður fékk vatn í munninn.
Fólkið sem sat við borðið var horað og veiklulegt.
Það leit út fyrir að vera að svelta í hel.
Fólkið hélt að skeiðum með löngu handfangi og hendur þeirra voru
bundnar við stólana en þó gátu þau veitt matinn upp úr pottinum með
skeiðinni.
En þar sem handföngin á skeiðunum voru lengri en hendur þeirra þá gátu
þau ekki komið matnum úr skeiðinni upp í sig.
Hinn helgi maður varð undrandi á þeirri eymd og þjáningu sem við honum
blasti.
Guð sagði, 'Þú hefur nú séð inn í helvíti.'
Síðan fóru þeir að næstu hurð og opnuðu hana.
Við blasti sama sjón og í fyrra herberginu.
Stórt hringlaga borð með stórum potti fullum af pottrétti sem einnig
varð til þess að hinn heilagi maður fékk vatn í munninn.
Fólkið hafði sama búnað, þ.e. skeiðar með löngu handfangi. Munurinn
var hins vegar sá að þetta fólk var vel haldið, kátt,hresst og talaði saman.
Þetta sagðist hinn helgi maður ekki skilja.
Þetta er einfalt, sagði Guð.
En þetta krefst eins hæfileika.
Eins og þú sérð þá hefur þetta fólk lært að mata hvert annað á meðan
að hinir gráðugu hugsa eingöngu um sjálfan sig.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 11:51 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
15.11.2008 | 00:00
kaupi þetta ekki
tvær hliðar á öllum málum, líka í þessu. Kallinn var ekki að sinna sínu. Hann var ekki við tilmælum yfirvalda um að sigla bátnum til hafnar. Þetta kemur fram á fréttavef Randers Amtsavis. Þar kemur einnig fram að frásögn hans kemur ekki út eins og frá lögreglunni... sjá mbl.is í dag á bls 24.
Kannski erum við farin að sjá Grýlur út um allt í þessari kreppu, enda að koma jól.
![]() |
Danir vildu ekki bjarga Íslendingi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 10:54 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)