12.4.2008 | 23:52
Hvað ætli búi margir á Íslandi?
Svona til gamans þá læt ég þetta flakka
Þann 1. desember 2007 er áætlað að á Íslandi hafi búið 312.872, en þegar þetta er skrifað (í upphafi árs 2008) liggja endanlegar tölur fyrir árið 2007 ekki fyrir. Íslendingum hefur fjölgað nokkuð hratt á undanförnum árum en árið 2007 dró úr fjölguninni. Þann 1. desember 2006 bjuggu alls 307.261 manns á Íslandi en á sama tíma árið áður voru landsmenn 299.404. Hægt er að nálgast nýjustu tölur um fólksfjölda á Íslandi á vef Hagstofu Íslands.Samkvæmt bráðabirgðatölum Hagstofunnar voru íbúar á höfuðborgarsvæðinu 195.970 eða 62,6% landsmanna þann 1. desember 2007. Þeir skiptust á eftirfarandi hátt á milli sveitarfélaga:
Sveitarfélag | Fjöldi íbúa | Hlutfall af öllum landsmönnum |
Reykjavík | 117.721 | 37,6% |
Kópavogur | 28.561 | 9,1% |
Hafnarfjörður | 24.839 | 7,9% |
Garðabær | 9.913 | 3,2% |
Mosfellsbær | 8.147 | 2,6% |
Seltjarnarnes | 4.428 | 1,4% |
Sveitarfélagið Álftanes | 2.361 | 0,8% |
Samtals | 195.970 | 62,6% |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.