Efni
24.7.2008 | 15:33
Virkar ekki
Eyðum 44 miljónum í eitthvað mikilvægara því af nógu er að taka. Borðum minna og málið er dautt.
Megrun fyrir 44 milljónir | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
« Síðasta færsla | Næsta færsla »
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (3.12.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 11
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 7
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Jóhanna Sigrún Jónsdóttir
Maðurinn minn heitir Emil H. Emilsson og eigum við fjögur börn.
Ég er menntaður leikskólakennari og starfa í Hraunvallaskóla Hafnarfirði.
Ef þú ert með persónuleg skilaboð til mín
þá er netfangið mitt: hannaruna@internet.is
msn netfangið mitt er: johannajon1@hotmail.com
Nýjustu færslur
- 2.10.2010 hvaða hvaða hvaða
- 2.10.2010 hvaða rugl er gangi
- 23.7.2010 verkfall
- 4.6.2010 nú er það svart
- 9.5.2010 Nú byrjar ballið
- 6.5.2010 komin tími til
- 4.5.2010 Haukar eru með þetta
- 28.4.2010 Loksins
- 9.4.2010 Yndislegt
- 17.3.2010 Hættulegt að skokka
- 28.2.2010 Vatnsleki á Selfossi
- 6.2.2010 ennnnn
- 6.2.2010 Jól 2009
- 6.2.2010 vá !
- 17.1.2010 Áfram Ísland!
Tenglar
Mínir tenglar
Fréttir
- Morgunblaðið
- Visir Vísir
- Veðrið
- Viðskipti
Leitarvélar
Flug
Leikskólar
Leikskólamál
Barnasíður
Fróðleikur
Fótbolti
- Haukar
- Knattspyrnusamband Íslands
- Tottenham
- Liverpool
- Skaginn
- Fótboltafréttir
- Stöðutafla 1 deildar karla 2009
Vefpóstur
Skemmtun
Færsluflokkar
Myndaalbúm
Eldri færslur
2010
2009
2008
Bloggvinir
- Bryndís Eva Vilhjálmsdóttir
- Sigríður Guðnadóttir
- Dagbjört Ásgeirsdóttir
- Rósa Aðalsteinsdóttir
- Guðríður Hrefna Haraldsdóttir
- Guðrún Vala Elísdóttir
- Guðbjörg Edda Björgvinsdóttir
- Snorri Bergz
- Ingveldur Theodórsdóttir
- Styrmir Hafliðason
- Kristín Dýrfjörð
- Bertha Sigmundsdóttir
- Guðrún Sæmundsdóttir
- Helena Leifsdóttir
- Guðsteinn Haukur Barkarson
- Hommalega Kvennagullið
- Svanur Heiðar Hauksson
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Greta Björg Úlfsdóttir
- lady
- Ragnar Emil
- Unnur Arna Sigurðardóttir
Athugasemdir
Oj bara alltaf lætur fólk plata sig!
Bara út að labba ókeypis, ég t:d labbaði út í sjoppu í gær hehe!
Bryndís Eva Vilhjálmsdóttir, 24.7.2008 kl. 15:51
já og ég labbaði út í bíl áðan... sko ekki málið
Jóhanna Sigrún Jónsdóttir, 24.7.2008 kl. 15:52
Hvað virkar ekki? Lyfin valda þriggja til fjögurra kílógramma þyngdartapi og draga úr líkum á sykursýki. Skv. mínum bókum er það ágætis virkni.
Guðmundur Guðmundsson (IP-tala skráð) 24.7.2008 kl. 17:13
Sæl öll.
Ég er svo þakklát fyrir þetta lyf sem er að hjálpa mér og mun sennilega spara í staðinn hjáveituaðgerð og slurk af lýtaaðgerðum.
Ég var svo ólánsöm að vera flogaveikissjúklingur þegar ég var barn. Lyfin sem ég tók höfðu aukaverkun, juku á matarlyst. Því miður vissum við þetta ekki og eins var móðir mín mjög mikið veik á þessum árum og því erfitt hjá okkur. Lengi býr að fyrstu gerð og það hef ég því miður sannreynt. Fyrir ári síðan sagði læknir mér frá þessu lyfi og einnig með aukaverkun á lyfjunum sem ég tók sem barn. Hann hvatti mig að taka þetta lyf og er ég honum ævinlega þakklát.
Það er auðvelt fyrir fólk að segja öðrum að fara út að ganga. Þið þyrftuð að prufa að vera þjökuð af þunglyndi. Að segja mörgum að fara út að ganga er sama og segja fótalausum manni að fara út að ganga.
Ég hef verið fyrir miklum árásum í gegnum lífið vegna ofþyngdar sem hafa komið inn ranghugmyndum hjá mér. Alltaf verið að setja út á mig og skilaboðin eru þá auðvita að ég er öðruvísi og hvernig haldið þið að mér líði að verða stöðugt fyrir árásum vegna útlit míns. Ég hef glímt og glímt við ranghugmyndir sem hafa skemmt fyrir mér.
Ég vona að þetta geti hjálpað aðeins. Ég allavega kem hér fram í einlægni. Hver verða viðbrögðin?
Þetta er því miður ekkert grín. Sorry.
Guð blessi ykkur og varðviti.
Kær kveðja/Rósa
Rósa Aðalsteinsdóttir, 24.7.2008 kl. 17:31
Ég er búin að prufa alskonar hluti og aðferðir til að fara í megrun og eyða summu af peningum í það en ekkert að því sem virkar. Eina sem hefur virkað á mig er ókeypis. Ég er ekki að tala um að allir séu eins, auðvita er fullt af einstaklingum sem þurfa aðstoð og það heilmikla, en ég er viss um að jafnmargir misnota þá aðstoð og þá er ég að tala um þessi lyf. En það er eins og með allt í þessu blessaða lífi. Þegar er tala um að nota þá aðferð sem er ókeypis þá er ég að tala um mig og alla þá sem eru stanslaust í megrun en þurfa þess ekki. Ekki kaupi ég með mikotíntyggjó eða nikótínplástur þar sem ég reyki ekki.
Jóhanna Sigrún Jónsdóttir, 24.7.2008 kl. 17:55
Hæ aftur.
Ég var með 50 aukakíló að mínu mati en meira að mati heimilislæknis míns. Ég er glöð yfir þessum 18-19 kílóum sem eru fokin.
Hugsaðu þér að ég er að verða 50 ára og er að glíma við þennan viðbjóð ennþá. Flogaveikin byrjaði þegar ég var tveggja ára gömul. Vona að þessu linni hjá mér án inngripa, hjáveituaðgerðin.
Guð veri með þér Hanna mín
Kær kveðja/Rósa
Rósa Aðalsteinsdóttir, 24.7.2008 kl. 18:02
Já vona að þetta fari allt vel hjá þér.
bestu kveðjur
Jóhanna Sigrún Jónsdóttir, 24.7.2008 kl. 18:46
Rósa mín þetta átti nú ekki að særa neinn, en þetta er húmor á milli okkar Hönnu Rúnu, því eins og hún sagði höfum við prófað ýmislegt, en þegar á reynt hefur ódýrasta leiðin dugað okkur best, en ekki þar með sagt að það gangi fyrir alla!
Gangi þér vel Rósa mín!
Bryndís Eva Vilhjálmsdóttir, 24.7.2008 kl. 22:42
Sælar stelpur mínar.
Ég þarf nú meira en þetta til að móðgast en ég vildi bara að annað sjónarmið kæmi fram. Leiðinda basl hjá mér í gegnum lífið.
Get sagt ykkur að það er búið að vera fjör í bloggheimum og hef ég fengið færslur frá fólki sem hefur nafngreint mig í pistlunum sínum.
Shalom/Rósa
Rósa Aðalsteinsdóttir, 24.7.2008 kl. 22:47
þú ert nú skelegg Rósa mín og bara eitt gott um það að segja!
Bryndís Eva Vilhjálmsdóttir, 24.7.2008 kl. 22:57
heilar og sælar skvísur og fleiri:-)
Verð nú að slást í hópinn....langar að vita hvernig þér tókst að léttast ókeypis Hanna Rúna?
Er hérna með eina sem að er allt of þung og læknirinn hennar skipaði henni að létta sig. Það væri bara upp á líf eða dauða en hún vill ekki að kaupa Herbó af mér svo kannksi gefir okkur uppskriftina á að léttast ókeypis? Og ekki segja henni að hreyfa sig og borða minna það er búið að segja það við hinn vestræna heim í yfir 20 ár og við höfum aldrei verið feitari meira að segja eru gæludýrin okkar orðin allt of feit skv. nýjustu fréttum:-(
Farin í Geiradalinn, knús Dagný
Dagný Davíðsdóttir (IP-tala skráð) 25.7.2008 kl. 16:46
Samk. Fylgiblaði Fréttablaðsins föstudaginn 25 júlí 2008 á bls: 6-7 er mjög gott viðtal við 43 ára konu sem styðst við það sem ég kalla að grennast ókeypis. Þar segir 43 ára kona frá því hvernig hún grenntist án nokkurs aukakostnaðar. Þetta tók hana aðeins eitt ár og missti hún rúml 30 kíló. Aðferðin var sú að hún breytti um lífstíl með breyttu mataræði og aukinni hreyfingu. Ég hvet alla til að lesa þessa grein og þá sérstaklega þá sem eru að glíma við aukakílóin en vilja ekki eða hafa ekki efni á að kaupa greningarpillur eða önnur greningarefni. Dagný! Endilega segðu þessari konu sem þú varst að segja mér frá að lesa greinina. Að mínu mati er þetta aðferðin sem er heilbrigðust og ókeypis. Megrunarkveðjur frá Hafnarfirði.
Jóhanna Sigrún Jónsdóttir, 25.7.2008 kl. 18:23
Sæl Hanna Rúna.
Ég las blaðið og viti menn þetta er ég að gera. Fyrir rúmu ári síðan sótti læknirinn minn um tíma hjá lækni sem framkvæmir hjáveituaðgerðir. Þegar ég kom frá Englandi seinnipartinn í ágúst fyrir ári þá hitti ég læknirinn og við fórum yfir málin og hann sótti um á Kristnesi Eyjafirði fyrir mig. Þangað fer ég í sept. og fer í undirbúnings vinnu vegna hjáveituaðgerðarinnar sem ég vona að ég geti eftir allt saman sleppt eins og konan sem var viðtal við. Hún var með þrjátíu kíló í upphafi eins og ég er með núna áður en ég byrja í undirbúningsvinnu. vona að ég sleppi við hjáveituaðgerð. Lyfið hefur hjálpað mér og mun gera ennþá.
Guð veri með þér og þínum.
Kær kveðja/Rósa
Rósa Aðalsteinsdóttir, 31.7.2008 kl. 00:07
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.