18.11.2008 | 22:05
Góðar fréttir
Konur mildast með aldrinum !!!
Mikið eru þetta góðar fréttir. Ekki veitir af að fá svona góðar fréttir í öllu bullinu sem er í gangi. Áfram konur, koma svoooo.
Konur mildast með aldrinum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt 19.11.2008 kl. 00:17 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
18.11.2008 | 01:36
Einn góður
Einn hrikalega góður
Maðurinn hafði fundið aðra - svo hún átti að flytja út. Hún eyddi fyrsta deginum í að pakka öllu niður í kassa. Næsta dag kom fluttningsbíllinn og sótti allt dótið. Þriðja daginn settist hún við fallega borðstofuborðið í síðasta skipti, kveikti á kertum, setti góða músik á og borðaði stóran skammt af rækjum, rússneskum kavíar og drak flösku af Chardonnay. Þegar hún hafði borðað, gekk hún hringinn í hvert einasta herbergi og tróð rækjurestum inn í endana á öllum gardinustöngunum! Þar á eftir gerði hún eldhúsið hreint og yfirgaf húsið.
Þegar maðurinn kom tilbaka í húsið með nýju kærustuna sína, voru fyrstu dagarnir ekkert nema gleði og hamingja. En svo byrjaði húsið smám saman að lykta. Þau prófuðu allt, ryksuguðu, þvoðu, loftuðu út. Loftræstingin var skoðuð gaumgæfilega kanski voru þar dauðar mýsog rottur, teppin voru hreinsuð, og ilmpokum og loftfrískandi vörum var komið fyrir alls staðar. Meindýravörnin var kölluð til og húsið var "gasað" gegn lyktinni, það þýddi, að þetta hamingjusama par þurfti að flytja út í nokkra daga. Að lokum var allt veggfóður rifið af og húsið allt málað vel og vandlega. Ekkert hjálpaði. Vinirnir hættu að koma í heimsókn. Iðnaðarmenn og aðrir starfskraftar gerðu allt til þess að þurfa ekki að vinna í húsinu. Húshjálpin sagði upp. Á þessum tímapunkti gátu þau ekki heldur haldið fnykinn út lengur, svo þau ákváðu að selja.
Mánuði seinna hafði húsið ekki selst, þrátt fyrir að verðið hafi lækkað um helming. Sagan gekk, og fasteignasalinn hætti að svara hringingum þeirra. Að lokum voru þau neydd til að taka stórt bankalán til að kaupa nýtt hús. Fyrrverandi - eiginkonan hringdi til mannsins og spurði hvernig gengi. Hann sagði henni söguna um rotna húsið. Hún hlustaði með mikilli umhyggju og sagði svo að hún saknaði gamla heimilis síns ógurlega mikið, og hún gæti vel hugsað sér að kaupa húsið aftur. Maðurinn var viss um að, ex-ið vissi ekkert um hve málið væri slæmt, svo hann samdi við konuna að selja henni húsið á tíunda-hluta af markaðsverði, gegn því skilyrði að skrifað yrði undir samdægurs. Hún samþykkti það.
Viku seinna stóðu maðurinn og kærastan í húsinu í síðasta sinn - þau hlógu yfir sig hamingjusöm. Og þeim var létt þegar fluttningsbíllinn kom og sótti allt þeirra dót til að keyra því yfir í nýja húsið. - þar á meðal gardínustöngunum!!!!
Bloggar | Breytt s.d. kl. 01:43 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
16.11.2008 | 12:04
ráðamenn talið íslensku
Dagur íslenskrar tungu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 12:11 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
16.11.2008 | 00:24
Viðhorf
Fékk svo skemmtilegan póst um daginn sem ég ætla að deila með ykkur.
Vera smá Pollyanna þessa dagana.
Viðhorf
Kona ein vaknaði að morgni,
leit í spegilinn,
og sá að hún var aðeins með þrjú hár á höfðinu.
Jæja" hugsaði hún, ætli ég hafi ekki hárið greitt aftur í dag.'
Sem hún og gerði og átti fínan dag.
Næsta dag vaknaði hún,
leit í spegilinn
og sá að hún var aðeins með tvö hár á höfðinu.
'H-M-M,' hugsaði hún,
'Ætli ég skipti ekki bara í miðju í dag.'
Sem hún og gerði og átti frábæran dag.
Næsta dag vaknaði hún,
leit í spegilinn og sá
að það var aðeins eitt hár á höfðinu.
'Jæja,' sagði hún, ætli ég verði ekki með
hárið í tagli í dag.'
Sem hún og gerði og átti skemmtilegan dag.
Næsta dag vaknar hún,
lítur í spegilinn og sér
að það var ekki stingandi strá á höfðinu.
'YAY!' hrópaði hún.
'Ég þarf ekki að hafa áhyggjur af hárgreiðslu í dag!'
Allt snýst þetta um viðhorf.
Lífið snýst ekki um að bíða eftir að storminn lægi...
það snýst um að dansa í rigningunni.
Bloggar | Breytt 17.11.2008 kl. 22:54 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
15.11.2008 | 15:16
bull
Algjört bull. Svo á þetta að líta voðalega vel út: Lækkun á bensíni. Fólk er ekki búið að gleyma að fyrir nokkrum vikum eða mánuðum var eldsneytið mikið lægra en þetta 147 krónur. Þoli ekki þegar verð eru sprengt upp úr öllu og rétt á eftir koma gleðifréttir: Lækkun á verði og allir glaðir. Það er alltaf verið að plata þjóðfélagsþegna þessa lands. Eldsneytið á að vera undir 100 krónum þá er hægt að tala um að það sé aðeins að lækka.... annars sleppa því.
Eldsneytisverð víða lækkað í dag | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
15.11.2008 | 11:42
Ég ætla deila skeiðinni með þér
Góð saga okkur til umhugsunar
Helgur maður var í viðræðum við Guð og sagði:
Guð, mig langar að vita hver munurinn er á himni og helvíti.
Við svo búið fór Guð með manninn að tvennum dyrum.
Hann opnaði aðra þeirra og hinn helgi maður leit inn.
Í miðju herbergisins var stórt hringlaga borð.
Á miðju borðsins var stór pottur með pottrétti sem ilmaði svo vel að
hinn helgi maður fékk vatn í munninn.
Fólkið sem sat við borðið var horað og veiklulegt.
Það leit út fyrir að vera að svelta í hel.
Fólkið hélt að skeiðum með löngu handfangi og hendur þeirra voru
bundnar við stólana en þó gátu þau veitt matinn upp úr pottinum með
skeiðinni.
En þar sem handföngin á skeiðunum voru lengri en hendur þeirra þá gátu
þau ekki komið matnum úr skeiðinni upp í sig.
Hinn helgi maður varð undrandi á þeirri eymd og þjáningu sem við honum
blasti.
Guð sagði, 'Þú hefur nú séð inn í helvíti.'
Síðan fóru þeir að næstu hurð og opnuðu hana.
Við blasti sama sjón og í fyrra herberginu.
Stórt hringlaga borð með stórum potti fullum af pottrétti sem einnig
varð til þess að hinn heilagi maður fékk vatn í munninn.
Fólkið hafði sama búnað, þ.e. skeiðar með löngu handfangi. Munurinn
var hins vegar sá að þetta fólk var vel haldið, kátt,hresst og talaði saman.
Þetta sagðist hinn helgi maður ekki skilja.
Þetta er einfalt, sagði Guð.
En þetta krefst eins hæfileika.
Eins og þú sérð þá hefur þetta fólk lært að mata hvert annað á meðan
að hinir gráðugu hugsa eingöngu um sjálfan sig.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 11:51 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
15.11.2008 | 00:00
kaupi þetta ekki
tvær hliðar á öllum málum, líka í þessu. Kallinn var ekki að sinna sínu. Hann var ekki við tilmælum yfirvalda um að sigla bátnum til hafnar. Þetta kemur fram á fréttavef Randers Amtsavis. Þar kemur einnig fram að frásögn hans kemur ekki út eins og frá lögreglunni... sjá mbl.is í dag á bls 24.
Kannski erum við farin að sjá Grýlur út um allt í þessari kreppu, enda að koma jól.
Danir vildu ekki bjarga Íslendingi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 10:54 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
11.11.2008 | 23:08
Samrýnd hjón
Kallinn hefur ekki ætlað kellu sinni að vera án hans í lifanda lífi. Ætli jarðaförin hafi klárast eftir áreksturinn eða henni hafi verið frestað og þau jörðuð saman?
Konu greyið væri á lífi ef líkbíllinn hefði litið svona út
Ekkjan lést á leið í kirkjugarðinn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 23:11 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
11.11.2008 | 16:07
Gamli góði Dallas
Hvernig væri að RUV myndi nú sýna þættina aftur. Ég er viss um að margir væru til það.
Southfork veisla fór úr böndunum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 16:12 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
10.11.2008 | 21:41
Ríkur, fátækur !! Góð saga
One day, the father of a very wealthy family took his son on a trip to the country with the express purpose of showing him how poor people live.
They spent a couple of days and nights on the farm of what would be considered a very poor family.
On their return from their trip, the father asked his son, 'How was the
trip?'
'It was great, Dad..'
'Did you see how poor people live?' the father asked.
'Oh yeah,' said the son.
'So, tell me, what did you learn from the trip?' asked the father
The son answered:
'I saw that we have one dog and they had four.
We have a pool that reaches to the middle of our garden and they have a creek that has no end.
We have imported lanterns in our garden and they have the stars at night.
Our patio reaches to the front yard and they have the whole horizon.
We have a small piece of land to live on and they have fields that go beyond our sight.
We have servants who serve us, but they serve others.
We buy our food, but they grow theirs.
We have walls around our property to protect us, they have friends to protect them..'
The boy's father was speechless.
Then his son added, 'Thanks Dad for showing me how poor we are.'
Isn't perspective a wonderful thing?
Makes you wonder what would happen if we all gave thanks for everything we have, instead of worrying about what we don't have..
Appreciate every single thing you have, especially your friends!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
8.11.2008 | 12:48
Gerist ekki betra en þetta
Góða helgi
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
6.11.2008 | 18:12
Björk að missa sig
haha... Björk ætlar líka að redda íslenku efnahagslífi með því að opna kaffisölu á hálendinu og sjávarréttastaði sem bjóða upp á þangsúpu.... þannig nýtum við auðlindir þjóðarinnar og málið reddast. (þetta er ekki alveg svona auðvelt )Hún gefur skít í álver. Austfirðingar þakka sínu sæla í dag fyrir að hafa byggt álverið á Reyðarfirði í þessari ömurlegu bankakreppu.
Kosning er á næsta leyti um stækkun Alcoa í Hafnarfirði, en 25% íbúa verður að skrifa á lista um að sú kosning verði að veruleika. þ.e.a.s um 4000 manns og sá listi er örugglega orðin fullur. Ég er þakklát fyrir að við fáum annan séns hér í þessu bæjarfélagi og ég er sannfærð um að kosið verði um stækkun. ( þar sem Hafnarfjarðarbær á varla ofaní né á). Við erum búin að missa af einum og hálfum milljarði nú þegar út af þessari fáránlegu niðurstöðu síðustu kosninga. Svo ég hvet alla að hætta þessari vitleysu og hugsa raunhæft.
Áfram Hafnarfjörður og Alcoa
Björk vill að Ísland gangi í ESB | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
3.11.2008 | 17:09
Bretadruslur
Fyndin frétt en samt enn betra að þetta hafi verið breti.
Límdur á klósettið | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 17:36 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
1.11.2008 | 15:51
Tileinkað Bryndísi sem stendur í stórræðum í dag
Bloggar | Breytt s.d. kl. 16:04 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
29.10.2008 | 20:25
Mitt lið að komast í gang
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
28.10.2008 | 16:49
Lítil þjóð með stórt hjarta
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
23.10.2008 | 20:03
1975
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
23.10.2008 | 17:47
Útskýring á mannamáli
Bloggar | Breytt s.d. kl. 18:04 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)